Á vef Orkuseturs er hægt að reikna eyðslu bíla og kaloríubrennslu við hjólreiðar. Miðað við forsendur um 75 kg líkamsþyngd, meðalfólksbíl, bensínverð 205 kr/L og 4.100 km hjólreiðar á ári voru niðurstöðurnar eftirfarandi: Sparnaður á bíl, koltvísýringur: 816 kg • bensín: 340 ltr • bensínkostnaður: 70.000 kr. Kaloríubrennsla hjólreiðamanns: 130.000 kcal. Þessar 130.000 kcal jafngilda um 14,5 kg af hreinni fitu. Það má því segja að þetta hjól eyði um 353 g af fitu/100 km.

IMG_0435

 

Nýr fólksbíl með 1,4 L vél getur skv. framleiðanda eytt allt að 0,7 L/km af bensíni (70L/100km) í köldu starti fyrsta kílómetrann eftir ræsingu. Fyrsti kílómetrinn gæti því kostað tæpar 160 kr á vetrarmorgni. Að aka stuttar vegalengdir í vinnu eyðir og mengar mest og er dýrast.

Árlegur kostnaður við gerð og viðhald á malbikuðu bílastæði er á bilinu 30-200.000 kr. Landverð er þá ekki meðtalið.

Meðalhraði á bíl í Reykjavík hefur verið mældur af Samgöngusviði borgarinnar frá úthverfum til vinnustaða. Árið 2010 var hann 31,6 km/klst á morgnanna og 37,6 km/klst síðdegis.

Meðalhraði á reiðhjóli í Reykjavík er á bilinu 10-25 km/klst.

Meðalhraði með strætó frá heimili á vinnustað getur verið um 20-25 km/klst.

Hjólað á tímakaupi

Setjum upp samanburðarhæft dæmi til að bera saman hjól og bíl. Bíll er notaður eingöngu til að fara til og frá vinnu á höfuðborgarsvæðinu og vegalengdin er 10 kílómetrar aðra leið. Það gerir um 5000 kílómetra á ári. Samkvæmt viðmiðunartölum frá FÍB gæti árlegur rekstur á bíl sem kostar nýr 3.000.000 verið um 900 þúsund miðað við þessa keyrslu. Rekstur á reiðhjóli sem kostar nýtt 100.000 krónur gæti verið 50 þúsund á ári. Ferðadagar eru 250. Gefum okkur einnig eftirfarandi forsendur:

Bíll Reiðhjól
Árleg vegalengd (km) 5000 5000
Innkaup nýtt (milljónir kr.) 3 0,1
Árlegur rekstrarkostn. (kr.) 900.000 50.000
Daglegur ferðatími 40 mín 70 mín
Árlegur ferðatími 167 klst 292 klst

 

Árlegur sparnaður við rekstur á hjóli í stað bíls  
900.000 – 50.000 = 850.000 kr.

Tímakaup við að hjóla (skattfrjálst) 
850.000 / 292 = 2911 kr

Niðurstaðan er að einstaklingur sem ferðast 10 kílómetra til vinnu þénar um 2900 skattfrjálsar krónur á tímann þegar hann hjólar til vinnu í stað þess að keyra. Þetta samsvarar tímakaupi hjá einstaklingi sem er með um 800.000 krónur í mánaðarlaun, miðað við núverandi skattþrepakerfi. Ef hjólað er styttri vegalengd til vinnu þá er tímakaupið ennþá hærra.

Allt að 60.000 kr. skattfrjálsar

Nú geta vinnustaðir gert samgöngusamninga við sína starfsmenn og greitt allt að 60.000 kr. á ári í samgöngustyrki. Samkvæmt reglum um skattmat tekjuárið 2011 (nr. 1057/2010) mega launagreiðendur greiða launþegum allt að 5.000 kr. á mánuði fyrir almenningssamgöngur eða notkun reiðhjóla enda sé ferðamátinn nýttur vegna ferða í þágu launagreiðanda og telst slík greiðsla ekki til skattskyldra tekna starfsmanna.

Árni Davíðsson og Stefán Sverrisson